|
Listasmiðja í Borgarleikhúsi |
|
þriðjudagur, 07 febrúar 2012 08:43 |
|
Fimmtudaginn 2. febrúar fóru nemendur í Listasmiðju, með Ásdísi í broddi fylkingar, af stað í roki og rigningu og heimsóttu Borgarleikhúsið og fengu smá kynningu af töfrandi lífinu baksviðs. Þau fengu að skoða leikmunaverkstæðið sem reyndist vera gullnáma af skemmtilegum hlutum og sáu t.d. mjög raunverulegann gervihaus úr leikritinu Axlar-Björn liggja á milli kaffibolla, leikbrúða og verkfæra. Við lærðum hjá förðunar og hárkollugerðinni að það er bara notað alvöru mannshár í hárkollur og að það tekur 80 klukkutíma að hnýta eina hárkollu því það þarf að hnýta hvert einasta hár við netið. Saumastofan sem sér um búninga vakti líka mikla aðdáun. Fyrir sýninguna Galdrakarlinn í Oz þurfti að sauma 150 búninga og svo þarf líka að þvo allt á milli sýninga sem þau þurfa líka að sjá um. Það var líka gaman að sjá hvernig leiksviðshönnuðir þurfa að setja upp lítil líkön af sviðunum, alveg eins og dúkkuhús. Þetta var skemmtileg upplífun og hægt er að sjá myndirnar hér fyrir neðan. |
|
Myndasýning
|
|
|
föstudagur, 03 febrúar 2012 14:47 |
|
Í tilefni af degi stærðfræðinnar var spilalota á öllum svæðum. Í 6. - 10. var spiluð félagsvist og voru krakkarnir virkir og duglegir og fljótir að tileinka sér félagsvistina. Mörgum fannst skrýtið að spila nóló þar sem lægstu spilin og fæstu slagirnir gefa flest stigin. Krakkarnir voru ánægðir og glaðir með þessa skemmtilegu tilbreytingu. Írena Þöll í 8.MK fékk flest stigin eða 51 stig. Í 1. - 5. bekk voru spiluð alls kyns spil og þrautir eins og Yatsý og slönguspil. Allir skemmtu sér vel.
|
|
Myndasýning
|
|
fimmtudagur, 02 febrúar 2012 10:19 |
|
Félagsmiðstöðin Fókus er búin að gefa út dagskrá fyrir febrúar. Hér er hægt að sjá dagskrá fyrir 5.-7. bekk og hér er dagskrá fyrir 8.-10. bekk. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Fókus.

|
|
Vegna innritunar 10. bekkinga í framhaldsskóla 2012 |
|
þriðjudagur, 31 janúar 2012 14:08 |
|
Umboðsmaður Alþingis hefur gefið út það álit að ekki sé viðhlítandi stoð í lögum fyrir forgangsreglu sem tekin var upp við innritun nýnema í framhaldsskóla árið 2010. Reglan fól í sér að nemendum í tilgreindum grunnskólum var veittur forgangur að hluta af nýnemaplássum í tilteknum framhaldsskólum, m.a. með hliðsjón af búsetu og samgöngum.
Ráðuneytið hefur í samræmi við álit umboðsmanns ákveðið að forgangsreglunni verði ekki beitt í komandi innritun 10. bekkinga.
Fyrirkomulag innritunar verður að öðru leyti óbreytt. Forinnritun fer fram í mars með möguleika á að breyta umsókn er lokaeinkunnir í 10. bekk liggja fyrir. Umsækjendum mun gefast kostur á að sækja um tvo skóla og við afgreiðslu umsókna verður sem fyrr fullt tillit tekið til varaumsóknar. Ráðuneytið mun tryggja að allir umsækjendur úr 10. bekk fái skólavist.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag innritunarinnar og tímasetningar verða birtar fyrir miðjan febrúar. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 114 |